Í fótspor þeirra eru tónleikar og sögukvöld sem haldnir eru á Kvenréttindadeginum 19. júní og eru jafnframt hluti af dagskrá Hinsegin daga á Norðurlandi.
Á tónleikunum fylgjum við slóðum listafólks sem lét rödd sína heyrast og notaði tónlistina til að tjá vonir, mótmæli, frelsisþrá og mannlega reynslu. Á milli laga eru stuttar frásagnir sem tengja saman sögur tónskálda og flytjenda á borð við Billie Holiday, Nina Simone, Joni Mitchell, Joan Baez, Kate Bush, Tracy Chapman, k.d. lang, Dusty Springfield og fleiri.
Efnisskráin spannar jazz, blues, folk og popptónlist og leiðir áhorfendur í gegnum ólík tímabil og ólíka baráttu fyrir sýnileika, frelsi og réttlæti. Þar mætast sögur svartra listamanna, kvenna og hinsegin fólks sem hafa haft áhrif á samfélagið með tónlist sinni.
Tónleikarnir eru jafnframt persónuleg ferð þar sem frumsamin lög tengja sögurnar við samtímann og spyrja hvað þessar raddir geti enn kennt okkur í dag.
Þetta eru því ekki hefðbundnir tónleikar heldur tónlistarleg frásögn um hugrekki, samkennd, sýnileika og von.
Flytjendur:
Helga Margrét Clarke – söngur
Aðalheiður Þorsteinsdóttir – píanó
Róberta Andersen – gítar
Ingibjörg Elsa Turchi – rafbassi
Viðburðurinn er styrktur af Verðandi listsjóði.