Núnó og Júnía - Þau kenndu heiminum að sjá
Ný fjölskyldusýning hlaðin töfrum og spennu
„Sérðu mig? Ég sé mig ekki.“
Núnó og Júnía gerist í fjarlægri framtíð í landinu Kaldóníu. Hinn ungi Núnó er mesta afreksmanneskjan í Kaldóníu og fyrirmynd allra íbúa landsins í hreysti og dugnaði. Mottó Núnós er að gera betur, gera enn betur og toppa það svo. Í Kaldóníu er ekkert pláss fyrir þá sem ekki ekki standa sig og falla ekki í mótið. Einn daginn hrynur veröld Núnós þegar hann uppgötvar að hluti af honum er orðinn ósýnilegur! Hann er hefur veikst af "Þokunni", hinni illvígu plágu sem ógnar Kaldóníu og íbúum þess. Núnó verður að leyna því að hann sé kominn með "þokuna" því annars verður hann numin af brott af þokusveitinni. Núnó hefst handa við að leita sér lækningar áður en hann verður "þokunni" að bráð og verður alveg ósýnilegur! Hjálpin berst honum úr óvæntri átt og ferðalagið verður til þess að Núnó kynnist sjálfum sér og heiminum alveg upp á nýtt.
Núnó og Júnía er nýtt íslenskt leikrit fyrir börn og unglinga úr smiðju Sigrúnar Huldar Skúladóttur og Söru Martí Guðmundsdóttur. Þær eru einnig höfundar leikgerðar Pílu Pínu sem sló rækilega í gegn á síðasta leikári. Sara Martí leikstýrði jafnframt uppsetningunni og hefur fengið til liðs við sig stóran hluta þess listræna teymis sem skapaði undraheim Pílu í sviðsetningu MAk í Hamraborg. Núnó og Júnía verður mikið sjónarspil hlaðið leikhústöfrum og sjónhverfingum. Tónlistarmaðurinn margrómaði, Íkorni, semur tónlistina í verkinu. Núnó og Júnía er einn af mörgum viðburðum í metnaðarfullri dagskrá MAk fyrir ungt fólk og börn. Sérstakur styrktaraðili sýningarinnar er Sparisjóður Höfðhverfinga. Við kunnum honum þakkir fyrir að styðja við framleiðslu á metnaðarfullum viðburði fyrir fjölskyldur á norðurlandi.
Persónur og leikendur:
Alexander Dantes Erlendsson Núnó
Bjarni Snæbjörnsson Þjálfi, læknir, Hildir
Dominique Gyða Sigrúnardóttir Júnía, Sópran, Nalía, formaður Ráðsins
Auk þess koma fram í ýmsum hlutverkum:
Aldís Sveinsdóttir, Arndís Eva Erlingsdóttir, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Brynjólfur Skúlason,Egill Andrason, Elísa Ýrr Erlendsdóttir, Eyþór Daði Eyþórsson, Freysteinn Sverrisson, Iðunn Andradóttir, Mateusz Swierczewski, Sigríður Alma Ásmundsdóttir, Sindri Snær Jóhannesson, Rakel Róbertsdóttir, Urður Andradóttir,Valentína Björk Hauksdóttir
Listrænir stjórnendur og aðstandendur:
Höfundar: Sigrún Huld Skúladóttir og Sara Martí Guðmundsdóttir
Leikstjórn: Sara Martí Guðmundsdóttir
Ljósa og myndbandshönnun Ingi Bekk
Leikmynda- og leikmunahönnun: Brynja Björnsdóttir
Búninga- og gervahönnun: Íris Eggertsdóttir
Hreyfinga- og danshönnuður: Katrín Mist Haraldsdóttir
Tónlist: Stefán Örn Gunnlaugsson (Íkorni)
Hljóðhönnun: Sigurvald Ívar Helgasson
Myndband: Ragnar Hansson
Grafískur hönnuður: Sverrir Ásgeirsson
Sýningastjóri: Þórunn Geirsdóttir
Hljóð- og ljósakeyrsla: Árni F. Sigurðsson, Gunnar Sigurbjörnsson
Lárus Heiðar Sveinsson, Sigurvald Ívar Helgasson
Eltiljós: Ólafur Göran Ólafsson Gros
Hár,förðun, aðstoð við búninga og gervi: Soffía Margrét Hafþórsdóttir
Málmsmíði: Jóhann Jónsson, Jón Dan Jóhannsson
Sviðs- og leikmyndavinna: Bjarki Árnason, Magnús Viðar Arnarsson
Jón Birkir Lúðvíksson
Ljósmyndir Auðunn Nielsson