Fara í efni
Dags Tími
01 .apr '24 14:00
Páskatónleikar Lúðrasveitar Akureyrar í leikandi léttri páskastemmingu.
 

Lúðrasveit Akureyrar var stofnuð árið 1942 og hefur allt frá stofnun sett mark sitt á samfélagið hér á Akureyri og leikið við ýmis tækifæri. Félagar í hljómsveitinni hafa lagt stund á tónlistarnám ýmist um lengri eða skemmri tíma og sum eru jafnvel atvinnu tónlistarfólk sem gefa af tíma sínum til þessa samfélagsverkefnis. Öll eiga það sameiginlegt að hafa ástríðu fyrir blásaratónlist og reyna að taka þátt í starfsemi hljómsveitarinnar hvenær sem færi gefst.

Frítt inn.