Menningarfélag Akureyrar
Menningarfélag Akureyrar er sjálfseignarstofnun sem samanstendur af þremur menningarstofnunum á Akureyri; Leikfélagi Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Menningarfélaginu Hofi. Sameiningin tók í gildi árið 2014 og er markmiðið að skapa öflugan vettvang fyrir þrjár af stærstu menningarstofnunum á Norðurlandi til að starfa saman, sækja fram í menningarlífi á Akureyri og efla enn frekar þá starfsemi sem þessir aðilar hafa staðið að. Í allri vinnu er áhersla lögð á aukna og bætta starfsemi, listrænt sjálfstæði, minni yfirbyggingu og hagræðingu í rekstri.
Markmið Menningarfélags Akureyrar
- Efla atvinnustarfsemi í leiklist og sinfónískri tónlist á Akureyri
- Bjóða fyrirmyndarvettvang fyrir tónlistar- og sviðslistaviðburði, fundi og ráðstefnur
- Stuðla að öruggum rekstri og góðri meðferð og nýtingu opinberra fjármuna
- Stuðla að auknu framboði og fjölbreytileika í menningar- og listalífi Norðurlands
- Tryggja samstarf og samræmingu viðburða milli stofnaðilanna þriggja