Á annaðhundrað þúsund gesta heimsóttu Hof í vetur
Það er óhætt að segja að starfsemin í Hofi hafi sett mark sitt á bæjarlífið á Akureyri og að með tilkomu hússins hafi orðið bylting í menningarlífinu á svæðinu. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Hofs segir það ljóst að tilkoma hússins hafi verið kærkomin og þörf viðbót við þá aðstöðu sem fyrir er á Norður- og norðausturlandi til viðburðahalds, hvort sem um er að ræða menningarviðburði, fundi eða ráðstefnur. „Fyrsta starfsárið hefur svo sannarlega staðið undir væntingum og bókanir fyrir næsta starfsár benda til að ekkert lát sé á eftirspurninni.“ Ingibjörg segist ekki óttast að tilkoma Hörpu ógni starfsemi Hofs á nokkurn hátt. „Ég sé fyrst og fremst tækifæri sem felast í tilkomu Hörpu og við finnum nú þegar fyrir því í Hofi að viðburðahaldarar sem hafa hug á að nýta sér aðstöðu í Hörpu vilja einnig koma í Hof.“
Spennandi menningarvetur framundan – áskriftarkort , nýjung í Hofi
Næsta vetur verða fjölmargir spennandi viðburði á dagskrá í Hofi, tónleikar, leiksýningar, kvikmyndasýningar, myndlistarsýningar og margt fleira. Nýjung í Hofi næsta vetur eru áskriftarkort Hofs þar sem gestir geta geta valið á milli þeirra fjölbreyttu viðburða sem verða á dagskrá. Þrjár tegundir áskriftarkorta verða til sölu í haust, Klassíska kortið, Brot af því besta og Dúndur. Á hverju korti verða þrír fastir viðburðir og einn valviðburður. Vetrardagskráin hefst á Akureyrarvöku með 60 ára afmælistónleikumBjörgvins Halldórssonar. Á meðal viðburða sem fylgja í kjölfarið næsta vetur eru tónleikar af tilefni því að 75 ár eru síðan hann lést sem bera yfirskriftina „Fjölskylduferð í Skódanum“. Samstarf við Kvikmyndaklúbb Akureyrar og Bíó Paradís verður um sýningar á klassískum kvikmyndum.Silfurtunglið, leikhópurinn sem setti upp Hárið, setur upp söngleikinn Spamalot eftir félagana úr Monty Python genginu,sem slegið hefur í gegn í Bretlandi. Skálmöld rokkar í Hofi og í október verður Páll Óskar gestur Jóns Ólafssonarí spjalltónleikaröðinni Af fingrum fram.
Sjáumst í Hofi!