Þeir félagar eru á ferð um landið og halda tónleika á 24 stöðum á Íslandi í sumar en þetta verða áttundu
tónleikar þeirra í ferðinni.
Efnisskrá þeirra félaga er lög af plötunni Vinalög sem inniheldur íslensk og færeysk dægurlög en plata þeirra varð mest selda
platan á Íslandi árið 2009.