Lay Low og gestir
Fram koma: Kammerkórinn Ísold - Eyþór Ingi Jónsson - Kór Hrafnagilsskóla - María Gunnarsdóttir - Strengjasveit - Daníel Þorsteinsson - Lára Sóley Jóhannsdóttir - Blásarakvartett - Vilhjálmur Ingi Sigurðarson - Slagverkssveit - Rokksveitin Malignant Mist - Helgi Þórsson - Helena Eyjólfsdóttir - Ivalu Birna Falck-Petersen - Hallgrímur Jónas Ingvason - Hjörleifur Örn Jónsson - Stefán Ingólfsson
Lay Low mun á tónleikunum leggja áherslu á eyfirsk skáld og flytja nokkrar gamlar perlur í sínum búningi ásamt þvi að ungir tónlistarmenn af svæðinu munu spreyta sig á lögum hennar. Þetta verður án efa skemmtilegur viðburður til að hefja starfsemi hússins á og við hlökkum til að sjá allt þetta unga fólk í húsinu.
Öllum 20 ára og yngri er boðið frítt á tónleikana*
Miðaverð aðeins 1.500 kr.
*Gegn framvísun skilríkja er hægt að nálgast einn miða í miðasölu Hofs frá og með fimmtudeginum 12. ágúst kl. 13:00. Fyrstir koma fyrstir fá!
Aðalstyrktaraðilar tónleikana eru:
Menningarráð Eyþings
Rarik