Lifandi leiðsögn um húsið
30.05.2011
Aðalsalir hússins, Hamraborg og Hamrar, verða skoðaðir og skyggnst verður á bak við tjöldin. Gestir fá að máta sig á sviðinu í Hamraborg, fara undir sviðið og alla leið upp undir rjáfur á tæknibrúnna yfir salnum.
Saga hússins og starfsemi verður rakin í stuttu máli og búast má við óvæntum uppákomum á leiðinni. Skoðunarferðin tekur um það bil klukkustund og fer fram á íslensku eða ensku.
Fyrirspurnir og bókanir berist til mak@mak.is