Dagskrá opnunarhátíðar Hofs
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2010
Kl. 11:00
TILRAUNALANDIÐ
Hin lifandi og gagnvirka sýning Tilraunalandið þar sem vísindin eru kynnt á óvenjulegan og skemmtilegan hátt með virkri þátttöku gesta. Allir aldurshópar ættu að geta fundið þar eitthvað við sitt hæfi. Sýningin fer fram fyrir utan Hof og stendur til 1. september. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.
Kl. 17:00
OPNUN MYNDLISTARSÝNINGA
Tvær myndlistarsýningar opnaðar í Hamragili. Annars vegar sýning Guðnýjar Kristmannsdóttur og hins vegar sýning sem Myndlistarfélagið stendur fyrir með verkum eftir rúmlega sextíu listamenn. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.
Kl. 19:30 og aukatónleikar kl. 22:30
TÓNLEIKAR LAY LOW OG GESTA
Söngkonan flytur norðlenska tónlist í bland við sína eigin ásamt gestum.
Fram koma auk Lay Low: Kammerkórinn Ísold, Eyþór Ingi Jónsson, Kór Hrafnagilsskóla, María Gunnarsdóttir, Strengjasveit, Daníel Þorsteinsson, Lára Sóley Jóhannsdóttir, Blásarakvartett, Vilhjálmur Ingi Sigurðarson, Slagverkssveit, Rokksveitin Malignant Mist, Helgi Þórsson, Helena Eyjólfsdóttir, Ivalu Birna Falck-Petersen, Hallgrímur Jónas Ingvason, Hjörleifur Örn Jónsson og Stefán Ingólfsson.
Rás 2 verður með beina útsendingu frá fyrri tónleikunum.
Öllum 20 ára og yngri er boðið frítt á tónleikana. Hægt er nálgast miða í Hofi. Fyrstir koma fyrstir fá. Miðaverð aðeins 1.500 kr
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2010
Kl. 16:00
VÍGSLUATHÖFN HOFS
Húsið vígt með formlegum hætti. Akureyringum gefst kostur á að fylgjast með vígsluathöfninni í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni N4.
Kl. 21:00-01:00
OPIÐ HÚS Í HOFI
Húsið opnað upp á gátt og gestir boðnir velkomnir. Allir hvattir til að líta við, kynna sér aðstæður og fjölbreytta starfsemi hússins.
Karlakór Akureyrar - Geysir tekur lagið ásamt öðrum skemmtiatriðum.
Kaffi og kleinur í boði Saga Capital.
Kl. 23:30
TÖKUM YFIR HÚSIÐ
Í umsjá Kristjáns Ingimarssonar. Gestir Akureyrarvöku eru hvattir til að mæta á staðinn og taka þátt í vígslu hússins undir dyggri stjórn byltingarhetjunnar Kingimars.
SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2010
Kl. 11:00 – 14:00
FJÖLSKYLDUMORGUNN Í HOFI
Dagskrá tileinkuð yngstu kynslóðinni. Heiðdís Norðfjörð les úr Pílu Pínu. Jana María og Heimir Bjarni Ingimarsson flytja tónlistina úr ævintýrinu. Brynhildur Þórarinsdóttir les úr bók sinni, Gásagátunni. Andlitsmálning í boði fyrir börnin. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.
Veitingastaðurinn 1862 verður með frábært fjölskyldutilboð í bröns.
Kl. 16:00
HÁTÍÐARTÓNLEIKAR SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR NORÐURLANDS
Tónlist eftir Hafliða Hallgrímsson, E. Grieg og A. Dvorák. Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson. Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson
Uppselt er á tónleikana!
Þess ber ennfremur að geta að veitingastaðurinn 1862 Nordic Bistro og hönnunarverslunin Hrím hefja starfsemi í Hofi á föstudaginn.
Auglýsing með viðburðum helgarinnar.
Miðasala og nánari upplýsingar um viðburði er hægt að nálgast hér. Miðasalan er opin alla virka daga frá kl. 13:00-19:00. Miðasölusími: 450 1000.