Samstarf Flugfélags Íslands, Icelandair hótel Akureyri og LA
Leikfélag Akureyrar, Flugfélag Íslands og Icelandair hótel Akureyri hafa gert með sér samstarfssamninga.
Flugfélag Íslands hefur verið einn af öflugustu bakhjörlum LA um árabil og hafa félögin endurnýjað samstarf sitt. Með stuðningi flugfélagsins hefur leikfélaginu reynst mögulegt að vinna með listamönnum hvaðanæva af landinu. Einnig hafa félögin boðið upp á leikhúsferðir til Akureyrar í tengslum við uppsetningar LA nú síðast Gullna hliðið sem fengið hefur fádæma góðar viðtökur.
Icelandair hótel Akureyri og leikfélagið efla nú samstarf sitt enn frekar. Með því að gista á Icelandair hótel Akureyri geta gestir nýtt sér gisti- og leikhústilboð. Auk þess munu listamenn frá Leikfélagi Akureyrar koma fram reglulega í anddyri hótelsins gestum og gangandi til upplífgunar og yndisauka.
Öllum þessum aðilum er umhugað að stuðla að fjölgun ferðamanna og eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu á Akureyri yfir vetrartímann og taka nú höndum saman í þeim tilgangi.