Trúðanámskeið í Hofi
Á námskeiðinu verður farið í undirstöðuatriði í trúðaleik, þátttakendur fá að skapa sinn eigin trúð og í gegnum leik og spuna er unnið stutt spunaverk þar sem trúðurinn lifnar við.
Námskeiðið verður eftirfarandi daga:
Mánudaginn 24. jan kl. 17.00 til 20.00
Miðvikudaginn 26. jan. kl 19.00 til 22.00
Fimmtudaginn 27. jan kl. 17.00 til 20.00
Nánari upplýsingar og skráning:
- Verð kr. 12.000
- Innifalið í verði er aðgangur að sýningunni Bláa gullið - 26. janúar kl. 17.00
- Skráning í síma 661-1492 og á netfangið: opidut@gmail.com
- Athugið aðeins 14 pláss í boði
Sólveig lærði leiklist í Bretlandi og hefur m.a. leikið í Meistaranum og Margaritu, Gunnlaðar sögu og Svörtum fugli í Hafnarfjarðarleikhúsinu, Horn á höfði með GRAL o.fl. Hún lærði trúðatækni hjá Angelu De Castro og Rafael Bienchiotto. Sólveig var m.a. aðstoðarleikstjóri Rafaels við uppsetningu á Dauðasyndunum sem sett var upp í Borgarleikhúsinu og við Þrettándakvöld sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu. Hún hefur kennt við Leynileikhúsið síðan árið 2004.