Vertu velkominn í ljónagryfjuna og uppgötvaðu rándýrið í sjálfum þér á trylltum tónleikum þar sem villidýr fá að leika lausum hala.
Fram koma Drengurinn fengurinn, madonna + child og Brenndu bananarnir.
Ljónagryfjan er hluti af Listviðburðaröð VERÐANDI í tilefni af 10+1 árs afmæli Menningarhússins Hofs.