Söngleikurinn Fimm ár er hluti af Listviðburðaröð VERÐANDI í tilefni af 10+1 árs afmæli Menningarhússins Hofs.
Fimm ár er falleg ástarsaga sem segir frá fimm ára sambandi ungrar konu og manns, hann er rithöfundur og hún er leikkona. Honum vegnar vel og verður fljótt vinsæll rithöfundur en þrátt fyrir endalausar prufur og puð kemst leikferill hennar aldrei á flug. Hún neyðist til að verja löngum sumrum í heimabæ sínum þar sem hún leikur í litlu bæjarleikhúsi og leigir herbergi með “ fyrrverandi vændiskonu og snáknum hennar, Wayne“. Það sem er sérstakt við frásögnina er að söguþráður Cathy gerist í öfugri tímaröð en Jamie segir frá sambandinu á sama tíma en í réttri röð. Persónurnar mætast aðeins einu sinni í miðju verksins.
Söngleikurinn Fimm ár er eftir Jason Robert Brown og er vel þekktur á West End og Broadway og af söngleikja aðdáendum út um allan heim. Þetta er fyrsta uppsetningin á söngleiknum hér á landi.
Fimm ár er einstök leikhúsupplifun sem leikhús- og tónlistaraðdáendur ættu ekki að láta framhjá sér fara.
Leikarar: Rúnar Kristinn Rúnarsson og Viktoría Sigurðardóttir
Hljómsveit: Einar Bjartur Egilsson, Hildigunnur Halldórsdóttir, Sigurður Halldórsson og Klara Sigurðardóttir
Leikmynd og búningar: Klara Sigurðardóttir
Þýðing: Jóhann Axel Andersen
Leikstjórn: Vala Kristín Eiríksdóttir
Video: Pálmi Jónsson
Tæknileg aðstoð: Kjartan Darri Kristjánsson
Upprunalega framleitt fyrir The New York Stage af Arielle Tepper og Marty Bell. Upprunalega framleitt af Northlight Theatre Chicago, II. Flutt með leyfi Music Theatre International Europe.
Sýningin er 75 mínútur og fer fram í svarta kassa Hamraborgar.