Breik- og nútímadans í Hofi
05.10.2016
Danski danshópurinn Next Zone verður í Hofi miðvikudaginn 12. október kl. 20 með sýningu sína 7 Rúnir. Danssýningin er hrá, ljóðræn og kraftmikil enda innblásin af norskri goðafræði, víkingum og kvikmyndinni Hunger Games. Áhorfendur eiga því von á góðu og sjá meðal annars breik- og nútímadans ásamt samtímasirkus á fjölunum.
Danshópurinn var stofnaður 1997 og hefur á árinu ferðast til Færeyja, Kanada og Íslands en markmið hans er að skapa listræna vinnu á sviði, í kvikmyndum og á listasýningum.
Norðurorka og Menningarfélag Akureyrar bjóða nemendum í 8. bekk grunnskóla á Akureyri og nærsveitum á skólasýningu þriðjudaginn 11. október en almenningi gefst tækifæri til að sjá sýninguna á miðvikudagskvöldinu 12. október.