Kammerkór Norðurlands
Miðasala hefst nk. mánudag á tónleika Kammerkórs Norðurlands sem bera heitið Úr ljóðum Laxness.
Þann 3. febrúar kl. 20:00 mun Kammerkór Norðurlands flytja lög við ljóð Halldór Laxness en þann 23. apríl síðastliðinn voru 110 ár frá fæðingu Nóbelskáldsins.
Á efnisskránni verða þekkt kórlög við ljóð Laxness og einnig hefur kórinn fengið til liðs við sig nokkur
tónskáld sem hafa samið ný lög fyrir þetta tilefni. Flutt verða lög eftir; Jóhann G. Jóhannsson, Báru Grímsdóttur,
Jón Ásgeirsson, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, Jón Nordal, Heimi Sindrason og Hauk Tómasson.
Kammerkór Norðurlands var stofnaður á haustdögum 1998. Í kórnum er söngfólk víðs vegar að af Norðurlandi, allt frá
Kópaskeri í austri að Sauðárkróki í vestri. Kórinn hefur á síðustu árum einbeitt sér að flutningi
íslenskrar tónlistar.
Stjórnandi Kammerkórs Norðurlands er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Nánari upplýsingar og miðasala í s. 450 1000 og hér.