Tónleikar í Hömrum í kvöld
17.02.2011
Flytjendurnir hafa safnað saman lögum eftir ýmis tónskáld við ljóð norðlensku höfðingjanna Kristjáns og Davíðs. Þau eiga það einnig sameiginlegt með ljóðskáldunum tveimur að Eyjafjörður er þeim einstaklega hugleikinn. Daníel býr þar og starfar sem píanóleikari og kennari til margra ára og Hulda er fædd á Akureyri og bjó í Eyjafirði til 25 ára aldurs.
Miðaverð á tónleikana: 2.500 kr.
Námsmenn, ellilífeyrisþegar og öryrkjar: 1.000 kr.
Miðasala á www.menningarhus.is og einnig við innganginn.