Tónleikarnir eru hluti af Listviðburðaröð VERÐANDI í tilefni af 10+1 árs afmæli Menningarhússins Hofs.
Kammerhópurinn Bjargir er nýr kammerhópur sem samanstendur af tveimur sellóum og fiðlu. Á tónleikunum mun hópurinn spila allsskonar kammerverk frá hinum ýmsu tímum tónlistarsögunnar og mun hópurinn stikla á stóru þegar kemur að því.
Hópurinn skipa þær: Helga María Guðmundsdóttir, Rún Árnadóttir og Sólrún Svava Kjartansdóttir. Þær eru allar uppaldar á Akureyri og útskrifuðust allar með framhaldspróf frá Tónlistarskólanum á Akureyri en stunda núna nám við Listaháskóla Íslands.
Kammerhópurinn Bjargir vonast til þess að þessir tónleikar komi á framfæri ungum konum í klassískri tónlist á Norðurlandi.