Aðalfundur Menningarfélags Akureyrar fer fram 25. október
07.10.2022
Aðalfundur Menningarfélags Akureyrar fer fram í Hömrum í Hofi þriðjudagskvöldið 25. október klukkan 20.00.
Dagskrá fundarins er samkvæmt skipulagsskrá félagsins.
- Skýrsla stjórnar
- Skýrsla Menningarfélagsins ses.
- Ársreikningur Menningarfélagsins ses.
- Umræða um skýrslu stjórnar og afgreiðsla ársreikninga
- Kynning á starfsáætlun fyrir komandi starfsár
- Tillögur stjórnar að breytingum á skipulagsskrá
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
- Tilkynning um skipun fulltrúa í stjórn
- Kosning löggilds endurskoðanda félagsins
- Önnur mál