Aðeins ein sýning eftir!
23.10.2023
Nú er komið að leiðarlokum hjá dásemdar sýningunni Njálu á hundavaði en síðasta sýningin fer fram í Samkomuhúsinu föstudagskvöldið 27. október.
Hljómsveitin Hundur í óskilum sló í gegn með sýninguna í Borgarleikhúsinu áður en hún kom norður til Leikfélags Akureyrar. Ef þú ert ekki búin/n að sjá sýninguna skaltu drífa þig að tryggja þér miða því það er aðeins ein sýning eftir!
Miðasala á mak.is