Alvöru íslenskt tónleikabíó í Hofi
Alvöru íslenskt tónleikabíó fer fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þegar íslenska verðlaunateiknimyndin LÓI – Þú flýgur aldrei einn verður sýnd við lifandi flutning Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, hljómsveitarinnar sem hljóðritaði tónlist norðlenska tónskáldsins Atla Örvarssonar við teiknimyndina.
Kvikmyndin LÓI – Þú flýgur aldrei einn, sem leikstýrð er af Árna Ólafi Ásgeirssyni, hefur verið sýnd um allan heim. Gagnrýnandi Fréttablaðsins gaf teiknimyndinni 5 stjörnur á sínum tíma en um stærstu opnun á íslenskri bíómynd síðustu ára var að ræða. Myndin sigraði í flokki evrópskra kvikmynda á Alþjóðlegu barnakvikmyndahátíðinni í Kristiansandi árið 2018 og flaug inn á topp tíu lista fjölda landa, meðal annars í Rússlandi, Mexíkó og Argentínu.
Sinfónísk tónlist spilar stórt hlutverk í teiknimyndinni og hefur tónlist Atla fengið einróma lof gagnrýnenda. Tónlistin komst á lista Public Choice á World Soundtrack Awards og fékk góða dóma í erlenda fagtímaritinu Movie Music þar sem henni var líst sem fallegri, hrífandi, hressandi og á stundum ógnvekjandi.
„Lói er dásamleg kvikmynd með sígildri sögu sem snertir sakleysið í manni,“ segir tónlistarmaðurinn Högni Egilsson úr hljómsveitinni Hjaltalín sem verður sérstakur gestur tónleikabíósins og mun taka lagið.
Hljómleikabíóið fer fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 22. september. Hægt er að nálgast miða HÉRNA.
Verkefnið er samvinna Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, RIFF, Saga Film og GunHill.