Bæjarstjórn unga fólksins í Hofi
26.03.2019
Bæjarstjórnarfundur unga fólksins verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi á morgun, þriðjudaginn 26. mars, kl. 17.
Samkvæmt samþykkt um ungmennaráð skal árlega haldinn bæjarstjórnarfundur unga fólksins í marsmánuði og hefur ungmennaráð undirbúið dagskrá fundarins. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur fundur er haldinn.
Fundurinn er öllum opinn og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og hlusta á raddir ungmennanna.