Benedikt búálfur tilnefndur sem leiksýning ársins
27.05.2021
Fjölskyldusöngleikurinn Benedikt búálfur hefur verið tilnefndur sem Leiksýning ársins, á Sögum-verðlaunahátíð barnanna!
Skemmtilegasta verðlaunahátíð landsins, Sögur-verðlaunahátíð barnanna, fer fram með pompi og prakt laugardaginn 5. júní næstkomandi, kl 19.45 í Hörpu og í beinni útsendingu á RÚV.
Á verðlaunahátíðinni fá börn á aldrinum 6-12 ára tækifæri til að verðlauna það sem þeim hefur þótt skara fram úr í barnamenningu á árinu sem er að líða.
Sýningar helgarinnar á Benedikt búálfi verða þær síðustu í bili. Sýningin verður svo tekin upp að nýju í haust.