Fara í efni

Blái hnötturinn fluttur á pólsku í Samkomuhúsinu

Miejski Teatre Miniatura frá Póllandi heimsækir okkur 21. september með nýja uppfærslu á Bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason. Sýningin var sett upp í Póllandi fyrr á þessu ári undir leikstjórn Erlings Jóhannessonar. Sýningin sem er mjög myndræn er flutt á pólsku og er þetta einstakt tækifæri til að sjá þessa fallegu sýningu. Sýningarnar verða tvær í Samkomuhúsinu sunnudaginn 21. september kl. 14:00 og kl. 18:00. Aðgangur er öllum opinn og ókeypis. Tekið er við miðapöntunum á netfanginu midasala@leikfelag.is en einnig verður hægt að nálgast miða við dyrnar einni klukkustund fyrir sýningu meðan sætapláss endist. 

Til baka