Bleika boðið
Boðið hefst með fordrykk og verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá með þekktum listamönnum. Happdrætti með glæsilegum vinningum og uppboð á hönnunarvörum.
Tilgangurinn með Bleika konukvöldinu er að eiga góða og skemmtilega kvöldstund en ekki síður að hvetja til árvekni gegn krabbameini hjá konum. Nánari dagskrá verður kynnt þriðjudaginn, 18. október næstkomandi.
Boðið hefst með fordrykk kl. 19.30. Fjölbreytt dagskrá til kl. 21.30.
Kynnar kvöldsins eru Þórhildur Ólafsdóttir og Sveinn H. Guðmarsson.
Dagskrá
Fordrykkur frá Vífilfelli
Léttar veitingar frá 1862 Nordic Bistro
Lay Low
Dóróthea Jónsdóttir
Kristjana Arngrímsdóttir
Alt saman
Eyþór Ingi Jónsson
Kammerkórinn Ísold
Hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
Ívar Helgason
Hvanndalsbræður
Eyrún Unnarsdóttir
Lára Sóley Jóhannsdóttir
Óskar Pétursson
Dansatriði frá Point dansstúdíó
Happdrætti
Íslensk hönnun
Uppboð
Miðaverð 1.200 og gildir aðgöngumiði einnig sem happdrættismiði.
Sambærilegt boð fer fram í Hörpu fimmtudaginn 27. október.
Miðasala fer fram í Hofi, sem er opin alla virka daga kl. 13-19 og einnig er hægt að kaupa miða hér á vefnum.
Styrktaraðilar Bleika kvöldsins eru: Hrím, OddDesign, Rassar í sveit, Óskabönd, Helena, Átak Heilsurækt, Aqua Spa, Icelandair Hotels Akureyri, Flugfélag Íslands, 1862 Nordic Bistro, Vífilfell, Ásprent, N4 og Vikudagur.