Borgarafundir um endurskoðun á stjórnarskránni á Akureyri
Fundurinn er kynningafundur um stjórnlagaþing og Þjóðfund 2010 auk þess sem kallað er eftir sjónarmiðum íbúa um sýn þeirra á endurskoðun stjórnarskrárinnar. Fundurinn er liður í fundaröð borgarafunda á sjö stöðum á landinu. Stjórnlaganefnd var kosin af Alþingi í sumar til þess að undirbúa endurskoðun stjórnarskrárinnar. Nefndinni er ætlað að finna og leggja fram gögn fyrir stjórnlagaþing, standa fyrir Þjóðfundi um endurskoðun á stjórnarskrá, vinna úr upplýsingum frá fundinum og afhenda stjórnlagaþingi og loks að leggja fram hugmyndir að breytingum á stjórnarskránni.
Guðrún Pétursdóttir formaður stjórnlaganefndar:
,,Við viljum kynna íbúum Norðurlands þau áform sem eru uppi um endurskoðun á stjórnarskrá lýðveldisins. Við sem stöndum að undirbúningum óskum einnig eftir því að fá að heyra sjónarmið fólks um hvernig samfélag það vill byggja. Við hvetjum Norðlendinga til að koma á fundinn og láta rödd sína heyrast.“