Bunny Elliot
Leikfélag Akureyrar sendir vinum sínum í Borgarleikhúsinu skemmtilega kveðju á frumsýningardegi.
Leikfélag Akureyrar birti í morgun myndband á facebook síðu sinni https://www.facebook.com/leikfelag þar sem Borgarleikhúsinu er óskað til hamingju með frumsýninguna í dag.
Í myndbandinu dansar hvíti kanínukarlinn í myrku herbergi undir hvítum kastara. Myndbandið minnir um margt á auglýsingar Borgarleikhússins fyrir Billy Elliot en kanínukarlinn og Billy eiga það sameiginlegt að vera helteknir af danslistinni.
Hér má sjá myndbandið sem hvíti kanínukarlinn og vinir hans í Undralandi gerðu fyrir krakkana í Billy Elliot.
Það er ekki langt síðan Leikfélag Akureyrar átti sinn frumsýningardag en fyrir sléttri viku síðan var ævintýrið um Lísu í Undralandi frumsýnt í Samkomuhúsi þeirra Akureyringa. Viðtökurnar hafa verið ákaflega góðar og fékk sýningin meðal annars fjórar stjörnur í Fréttablaðinu.