Skráningarfrestur framlengdur til 6. september
01.09.2020
Skráningarfrestur í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar hefur verið framlengdur til 6. september. Kennsla hefst 7. september. Skólinn býður alla krakka frá 2. bekk og upp í 10. bekk grunnskóla velkomna í faglegan og skemmtilegan leiklistarskóla. Nýr skólastjóri LLA er María Pálsdóttir, leikkona:
„Ég er spennt að hitta nemendur og hefja önnina. Það verður svo gaman hjá okkur í vetur! Markmið skólans er að láta alla nemendur blómstra á sviðinu og leiðin að því er að nota allar töfraaðferðir leiklistarinnar og leikhússins,“ segir María.
Haustönnin hefst 7. september og fer skráning fram hér á Nóra-kerfinu.
Nánari upplýsingar hérna.