Evróvisjónstuð um liðna helgi
Söngvararnir Friðrik Ómar og Regína Ósk fóru á kostum. Þau slógu á létta strengi milli laga og hrifu áheyrendur með vönduðum söng sínum og sviðsframkomu og voru sérlega glæsileg þegar þau sungu lagið “This is my life” í viðhafnarútgáfu í tilefni tónleikanna. Friðrik Ómar vakti sérstaka lukku í gervi Fridu úr ABBA íklæddur fjólubláum pallíettukjól, rauðum háhæluðum skóm og með myndarlegt liðað rautt hár.
Sinfóníuhljómsveitin undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar þótti ljá áður þekktum lögum nýjan tón með góðu liðsinni 25 manna kórs og bakradda í hljómsveitarútsetningum Matis Podra. Flutningur Evróvisjónfaranna Gretu Salóme og Jónsa á laginu Never forget sem verður framlag Íslands í keppninni í ár setti svo punktinn yfir i-ið og vakti mikla lukku og fólk var sérlega ánægt tækifærinu að sjá og heyra lagið “life”. Tónleikarnir enduðu með standandi lófaklappi, húrrahrópum og blístri og allt ætlaði vitlaust að verða þegar hljómsveitin og söngvarar fluttu uppklappslagið “Nína”.