Fiðringur og Upptakturinn styrktir til þriggja ára! Barnamenningin blómstrar.
Menningarfélag Akureyrar og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar gerðu í dag með sér samning um styrk til tveggja verkefna, Upptakt og Fiðring. Um er að ræða áhersluverkefni Sóknaráætlunar sem stjórn SSNE hefur valið að styrkja til þriggja ára. Styrkirnir eru mikið fagnaðarefni fyrir Menningarfélag Akureyrar og barnamenningu á Norðurlandi eystra.
Fiðringur er hæfileikakeppni ungmenna á Norðurlandi eystra sem hefur það að markmiði að stuðla að listsköpun ungmenna og hvetja þau til að semja, æfa og flytja sína eigin frumsköpun. Með Fiðringi er skapaður vettvangur fyrir ungmenni af öllu svæðinu til að halda uppskeruhátíð og flytja verk sín á sviði með öllum leikhústöfrunum.
Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna á Norðurlandi eystra stuðlar að tónsköpun ungs fólks og hvetur þau til frumsköpunar. Ungmennin fá aðstoð við að fullvinna hugmyndir sínar í vinnusmiðjum með atvinnu tónlistarfólki og upplifa eigin tónlist í flutningi atvinnuhljóðfæraleikara. Þátttakendur eignast svo hágæða upptökur af eigin tónsmíðum í flutningi fagfólks.
„ Það skiptir bæði þessi verkefni afar miklu máli að hafa vissu fyrir því að fjármögnun til þriggja ára liggi fyrir og mun vonandi gera þeim kleift að blómstra enn frekar og skapa sér vettvang til framtíðar. Að auki verður upplifun ungmennanna betri þar sem fókusinn mun geta farið frá því að hafa áhyggjur af fjármögnun hvers árs í að vinna enn meira með verkefnin sjálf. Samningurinn gerir barnamenningu í landshlutanum enn hærra undir höfði og því fögnum við gríðarlega,” segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri Menningarfélags Akureyrar og verkefnastjóri Upptaktsinsog tekur María Pálsdóttir verkefnastjóri Fiðrings heilshugar undir þau orð.
Sóknaráætlanir landshlutanna eru fjármagnaðar af menningar- og viðskiptaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu. Fyrir áhugasama má kynna sér Sóknaráætlun Norðurlands eystra og verkefni hennar á heimasíðu SSNE, auk þess sem upplýsingar um bæði Upptaktinn og Fiðring má finna á mak.is