Fjallabræður og gestir
Til að taka af allan vafa þá eru Fjallabræður ekki kór í sinni einföldustu mynd, en þeir sem hafa gert sér væntingar um slíkt verða þó ekki fyrir vonbrigðum!
Hljómsveit Fjallabræðra skipa þau Óskar Þormarsson og Orri Guðmundsson á trommur, Helgi Egilsson á bassa, kórstjóri og á gítar er Halldór Gunnar Pálsson og síðast en ekki síst fallegasti Fjallabróðirinn og Akureyramærin, Unnur Birna (Bassa) Björnsdóttir á fiðlu og söng.
Sérstakir gestir á tónleikunum í Hofi verða Sverrir Bergmann og Jónas Sig úr Ritvélum Framtíðarinnar.
Kórinn var óformlega stofnaður á haustmánuðum árið 2006 þegar Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri heimtaði að karlakór myndi syngja í afmælinu hans. Síðan þá hafa margir bæst við í kórinn og eru menn með smekk fyrir félagskap hvers annars sérstaklega velkomir. Kórfélagar eru flestir að vestan en þó er kjarninn frá Flateyri. Í kórnum eru líka nokkrir Reykvíkingar sem allir eiga það sameiginlegt að þekkja fjöllin fyrir vestan með nafni og/eða hafa drukkið sjálfa sig undir borðið á þorrablóti á Vestfjörðum.