Fara í efni

Friðrik Ómar - Aukatónleikar kl.17

Friðrik Ómar heldur uppá þrítugsafmælið sitt með stæl í Hofi og með honum verður einvalalið hljóðfæraleikara undir stjórn Þóris Úlfarssonar.

Einnig verða góðir gestir, samstarfsmenn Friðriks þau Guðrún Gunnarsdóttir, Regína Ósk og Jógvan Hansen. Von er á fleiri óvæntum gestum. 

Skemmst er frá því að segja að Friðrik fyllti Hof í þrígang þessa sömu helgi fyrir ári síðan þegar hann heiðraði minningu Vilhjálms Vilhálmssonar með glæsilegum tónleikum sem seint gleymast.

Til baka