Fara í efni

Gestir út um allt

Frábærir listamenn koma í heimsókn og áhorfendur eru velkomnir í salinn í Hofi til þess að taka virkan þátt í gleðinni. Það kostar ekkert inn, nema löngun til að hafa það skemmtilegt.

Aðalgestir þáttarins að þessu sinni verða þau Ellen Kristjánsdóttir og Magni Ásgeirsson.

Meðal dagskrárliða eru óvæntir leikþættir, leynigestir og leiknar auglýsingar, húsráð frú Blöndal, leikir með áhorfendum í sal og tónlist í öllum regnbogans litum

Það verður sungið og trallað, leikið og spjallað og Gestir út um allt, síðasta sunnudag í mánuði frá klukkan 12.45-15 á Rás 2.
Til baka