Fara í efni

Gestir út um allt

Útvarpsþátturinn Gestir út um allt sló heldur betur í gegn síðastliðin vetur og heldur nú áfram göngu sinni á stóra sviðinu í Hofi. Margrét Blöndal og Felix Bergsson umsjónarmenn þáttarins byrja aftur að bjóða til sín góðum gestum sunnudaginn 28. ágúst.

Tónlist, leikrit, leiknar auglýsingar, heimilisleg húsráð og óvæntar uppákomur eru á meðal þess sem verður á dagskránni í vetur. Frábærir listamenn koma í heimsókn í Hof þar sem Margrét og Felix taka vel á móti þeim.

Hljómsveit Hjörleifs Arnar Jónssonar verður á sínum stað og áhorfendur eru velkomnir í salinn til að taka þátt í gleðinni.

Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.

 

Til baka