Fara í efni

Gjafakort í leikhúsið í jólapakkann

Leikfélag Akureyar á 40 ára afmæli sem atvinnuleikhús í ár og tekur dagskráin að einhverju leyti mið af því. Dagskráin eftir áramót er sérlega fjölbreytt og skemmtileg. Strax í janúar frumsýnum við Gullna hliðið , þá er við hæfi að frumsýna Lísu og Lísu með þeim Sunnu Borg og Sögu Jónsdóttur á Valentínusardaginn. Skemmtilegt er myrkrið, barnaverk eftir leikhóp LA verður sýnt í apríl og Söngur hrafnanna eftir Árna Kristjánsson verður frumsýnt 1. mars á 50 ára dánardægri Davíðs Stefánssonar.

Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk miðasölu LA í síma 4 600 200.

 

Til baka