Fara í efni

Grafíksýningin Ristur

Kristinn G. Jóhannsson sýnir dúkristur og hefur um þær þessi orð: "Ég hefi lengi verið aðdáandi einlægs handbragðs á smíðuðum, ofnum og prjónuðum hversdagshlutum, fordildarlausrar listar. Þar leitaði ég fanga. Skar í dúk mynstur,sótt þangað, þrykkti á pappír og velti fyrir mér á ýmsa vegu. Ég var alls óvanur dúkskurði og ekki sérlega handlaginn heldur, en niðurstaðan þessi.”

Guðmundur Ármann Sigurjónsson sækir viðfangsefnið í náttúruna, hina síbreytilegu birtu sem ljær landinu, himninum, vatninu, fjöllunum og gróðrinum form, sem við nemum í umhverfinu. Skynjun sem grópast í vitundina verður að minni sem er viðmið í sköpunarferlinu. Myndirnar eru óhlutlægar þar sem hefðbundið mótíf er horfið og eftir standa lárétt form sem fljóta frjáls á myndfletinum og skapa skynjun sem vísar til náttúruupplifunar. Ferlinu lýkur svo ekki fyrr en sýningargestir hafa skynjað myndirnar og lagt sinn dóm á hvernig til hefur tekist.

Kristinn G. Jóhannsson. Stúdent frá MA 1956 og lauk kennaraprófi 1962. Starfaði við kennslu og skólastjórn á Patreksfirði, Ólafsfirði og Akureyri í tæpa fjóra áratugi en hefur velt af sér þeim reiðingi. Nam myndlist á Akureyri, Reykjavík og í Edinburgh College of Art. Hann efndi til fyrstu  sýningar sinnar á Akureyri 1954 en sýndi fyrst í Reykjavík, í Bogasal Þjóðminjasafnsins, 1962 og sama ár tók hann fyrsta sinni þátt í Haustsýningu FÍM í Listamannaskálanum. Hefur síðan sýnt oft og víða.

Guðmundur Ármann lauk námi í prentmyndasmíði 1962. Hóf myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1962 og útskrifaðist úr málunardeild 1966. Nám við Valand Konsthögskolan í Gautaborg 1967 og lauk þar námi í grafíkdeild 1972. Kennararéttindanám við Háskólannn á Akureyri 2003 og stundar nú meistaranám í kennslu listgreina. Starfar sem kennari myndlistarkjörsviðs listnámsbrautar Verkmenntaskálans á Akureyri. Er stundakennari við Háskólann á Akureyri. Guðmundur Ármann sýndi fyrst í Mokkakaffi 1962, blekteikningar og kolteikningar. Einkasýningarnar eru á þriðja tug, síðast í Norðurlandahúsinu, Færeyjum, í Gallerí Turpentín og í sal Íslenskrar Grafíkur. Hefur tekið þátt í fjölda samsýninga heima og erlendis, norrænum myndlistarverkefnum og alþjóðlegum grafíksýningum.

 

 

Til baka