Fara í efni

Grunnskólabörnum boðið á Stúf í Samkomuhúsinu

Nú hefur Stúfur lokið sýningum á leiksýningu sinni í Samkomuhúsinu. Hann sinnir nú sínum jólasveinaskyldum enda nóg að gera við að gleðja og skemmta í desember. Stúfur sýndi alls 6 sýningar fyrir nærri 1200 áhorfendur! Það var uppselt á allar sýningar og mikil gleði meðal áhorfenda.  Sýningin var í senn skemmtileg og fyllti hjartað af jólagleði og hlýju.

Stúfur og Leikfélag Akureyrar með fulltingi Norðurorku buðu 3. og 4. bekk allra grunnskóla á Akureyri og sveitarfélaga í kring í leikhús. Það voru 600 börn sem þáðu boðið og engu munaði að þakið rifnaði af Samkomuhúsinu svo mikil var stemningin.

 

Stúfur kann öllum miklar þakkir fyrir stuðninginn og góðar móttökur.  Það var mikil ánægja með Stúf hjá Menningarfélagi Akureyrar svo að Leikfélagið og Norðurorka buðu Stúf að koma með sýninguna sína um næstu jól í Samkomuhúsið. Stúfur þáði boðið og segist hlakka til að læra meira á leikhúsið og mæta þá með nokkra nýja leikhúsgaldra.

 

Stúfur hóf æfingar á leiksýningunni í lok nóvember. Á æfingartímanum bauð hann efstu bekkjum í  leikskólum á Akureyri að koma í heimsókn og fá leiðsögn um Samkomuhúsið frá leikhússtjóranum. Frábær þátttaka var frá leikskólunum og var glatt á hjalla í þessu 110 ára gamla húsi. Á annað hundrað leikskólabörn þáðu boð Leikfélagsins og Stúfs.

 

Stúfur og Leikfélagið þakkar börnum á Akureyri fyrir frábærar móttökur og óskar þeim og aðstandendum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. 

 

Til baka