Fara í efni

Gullna hliðið á stóra svið Borgarleikhúss í haust

Uppfærsla Leikfélags Akureyrar á Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson mun vera sýnd sem gestasýning í Borgarleikhúsinu í haust. Sýningin vakti mikla athygli hér á Akureyri síðasta vetur og fékk mikið lof gagnrýnenda.  Egill Heiðar Anton Pálsson leikstýrir verkinu. Hljómsveitin Eva skipuð þeim Sigríði Eir Zophoníasardóttur og Jóhönnu Völu Höskuldsdóttur sömdu  nýja tónlist við verkið.

 Verkið  Gullna hliðið er eitt af þekktustu og vinsælustu leikritum sem skrifuð hafa verið á Íslandi. Þessi bráðskemmtilegi alþýðuleikur hverfist um persónu kerlingar einnar sem má ekki til þess hugsa að nýlátinn eiginmaður hennar hljóti vist í Helvíti. Hún leggur því á sig langt og strangt ferðalag til þess að koma „sálinni hans Jóns“ inn í Himnaríki. Á leiðinni mætir hún ýmsum persónum úr lífi hins annálaða syndasels og verður smám saman ljóst að það mun ekki reynast þrautalaust að koma sál hans inn fyrir hið gullna hlið.

 Davíð Stefánsson fæddist að bænum Fagraskógi árið 1895 og lést á Akureyri í mars 1964. Hann er eitt af þjóðskáldum Íslendinga og hafði gífurlega mikil áhrif á íslenska ljóðagerð á tuttugustu öld. Davíð reyndi einnig fyrir sér sem leikskáld. Af leikritum hans þykir „Gullna hliðið“ hafa staðist tímans tönn hvað best. Þá urðu kvæðin í leikritinu landsfræg í búningi Páls Ísólfssonar sem gerði við þau þekkt lög.

Aðstandendur Höfundur: Davíð Stefánsson | leikstjóri: Egill Heiðar Anton Pálsson |Tónlist: Hljómsveitin Eva | Leikmynd og lýsing: Egill Ingibergsson | Búningar: Helga Mjöll Oddsdóttir | Leikarar: María Pálsdóttir, Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Hilmir Jensson, Hannes Óli Ágústsson og fleiri. 

Til baka