Fara í efni

Helgi magri - síðasta sýning

 

Síðasta sýning á Helga magra er fimmtudagskvöldið 22. september kl. 20 í Samkomuhúsinu. Helgi magri hefur fengið frábærar viðtökur áhorfenda og fína dóma í Menningunni í Kastljósi, Vikudegi og á Akureyri.net svo eitthvað sé nefnt. Hið kómíska, kosmíska og kærleiksríka spunaverk Helgi magri var fyrsta sviðsetning okkar á þessu starfsári en sýningartíminn var snarpur, sex sýningar, í september. Við hvetjum Akureyringa og nærsveitarfólk að drífa sig í leikhús því það er hver að verða síðastur að sjá þessa „frumlegu og kærleiksríku sýningu“  eins og Hlín Agnarsdóttir í Menningunni komst að orði. 

Ekki er úr vegi að minna á að það er opið í Borgarasal Samkomuhússins og tilboð á barnum fyrir og eftir sýningu. 

 

Til baka