Hof og Hótel Kea vinna saman að markaðssetningu
Menningarhúsið Hof og Hótel Kea hafa undirritað samstarfssamning sem felur meðal annars í sér samstarf í markaðsaðgerðum með áherslu á menningarbæinn Akureyri. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvæmdarstjóri Menningarhússins Hofs segir það virkilega ánægjulegt að vera í samstarfi við Hótel Kea sem er fyrir löngu síðan orðið órjúfanlegur hluti af Akureyri. „Hótel Kea stendur alltaf fyrir sínu enda eitt rótgrónasta fyrirtæki bæjarins og næstelsta hótel landsins og það er virkilega ánægjulegt að vinna með því góða fólki sem þar er við stjórnvölinn“ segir Ingibjörg og bætir við að það sé auðvitað allra hagur að taka vel á móti þeim gestum sem sækja Akureyri heim. „Þetta samstarf er auðvitað hluti af stærra verkefni sem snýst um að bjóða uppá sem fjölbreyttasta þjónustu við þá ferðamenn sem velja að heimsækja bæinn. Þetta er auðvitað verkefni sem krefst aðkomu allra aðila sem starfa í verslun og þjónustu á svæðinu.“
Fyrsta verkefni Hofs og Hótels Kea í þessu samstarfi felur í sér tilboð á gistingu og á miðum á tónleika Pálma Gunnarssonar, sem bera yfirskriftina Þorparinn, og eru í Hofi 8. nóvember næstkomandi. „Pálmi sló algjörlega í gegn þegar að hann spilaði fyrir fullu húsi í Hörpu á dögunum og við finnum að það er mikill áhugi á þessum tónleikum í Hofi“ segir Ingibjörg.
Hrafnhildur E. Karlsdóttir hótelstjóri á Hótel Kea segist fagna samstarfinu enda sé það mikilvægt að eiga í góðu samstarfi við menningarstofnanir bæjarins. „Margir af okkar gestum koma hingað meðal annars til þess að sækja menningarviðburði og við viljum eiga í sem mestu og bestu samstarfi við menningarstofnanir á Akureyri og er þetta samstarf hluti af því. Það hefur sýnt sig á þeim þremur árum frá því að Hof opnaði að húsið er frábær viðbót við menningarstarf í bænum og að fólk kemur alls staðar að af landinu til að sækja viðburði í Hofi.“