Fara í efni

Húsmóðirin

Hér tekst Vesturport á við gamanleikjaformið þar sem hurðir opnast og lokast á háréttu augnabliki, persónur birtast á óþægilegu andartaki eða yfirgefa sviðið rétt áður en allt verður óbærilega vandræðilegt.

Öll trixin í bókinni og auðvitað fullt af óvæntum uppákomum að hætti Vesturports. Húsmóðirin er sett upp í Hamraborg, stóra sal Hofs, en áhorfendur sitja á sviðinu.

Húsmóðirin er samstarfsverkefni Vesturports og Borgarleikhússins.

Vesturportshópinn þarf vart að kynna en hann á 10 ára afmæli í ár og í vor hlaut hann Evrópsuku leiklistarverðlaunin sem eru ein virtustu leiklistarverðlaun í heiminum. Hópurinn hefur á þessum tíu árum verið afkastamikill og sett upp margar eftirtektarverðar sýningar og framleitt nokkrar kvikmyndir. Þær sýningar sem mesta athygli hafa hlotið einkennast af sterkum myndum, krafti og gleði, grípandi tónlist og ólgandi tilfinningum. Nú um helgina veitti Vesturport Evrópsku leiklistarverðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn í Alexandrinsky-leikhúsinu í Pétursborg. Þetta er án vafa mesta viðurkenning sem íslenskt leikhús og leikhúslistamenn hafa hlotið fyrr og síðar. Sýningarnar Hamskiptin og Faust voru sýndar ytra í tenglsum við hátíðina fyrir fullu húsi fjölmiðla – og leikhúsfólks og var vel fagnað.

Höfundar og leikarar verksins eru þau Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Víkingur Kristjánsson og Jóhannes Níels Sigurðsson. Leikmynd og búninga hannar Ilmur Stefánsdóttir og lýsingu annast Þórður Orri Pétursson. Pálmi Sigurhjartarson semur og flytur tónlist og Ólaf Örn Thoroddssen er hljóðmaður sýningarinnar.


Til baka