Húsmóðirin sló í gegn í Hofi - aukasýning næstu helgi
Í sýningunni tekst Vesturport á við gamanleikjaformið þar sem hurðir opnast og lokast á hárréttu augnabliki, persónur
birtast á óþægilegu andartaki eða yfirgefa sviðið rétt áður en allt verður óbærilega vandræðalegt. Leikarar skipta
um hlutverk á ótrúlega stuttum tíma, einn ryður út úr sér orðaleikjum á meðan annar dettur á bananahýði. Öll
trixin í bókinni og auðvitað fullt af óvæntum uppákomum að hætti Vesturports. Litrík og hættuleg sýning þar sem
leikið er út á ystu nöf.
Húsmóðirin er sett upp í Hamraborg, stóra sal Hofs, en áhorfendur sitja á sviðinu.
Vesturportshópinn þarf vart að kynna en hann á 10 ára afmæli í ár og í vor hlaut hann Evrópsuku leiklistarverðlaunin sem eru ein virtustu leiklistarverðlaun í heiminum. Hópurinn hefur á þessum tíu árum verið afkastamikill og sett upp margar eftirtektarverðar sýningar og framleitt nokkrar kvikmyndir. Þær sýningar sem mesta athygli hafa hlotið einkennast af sterkum myndum, krafti og gleði, grípandi tónlist og ólgandi tilfinningum. Nú um helgina veitti Vesturport Evrópsku leiklistarverðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn í Alexandrinsky-leikhúsinu í Pétursborg. Þetta er án vafa mesta viðurkenning sem íslenskt leikhús og leikhúslistamenn hafa hlotið fyrr og síðar. Sýningarnar Hamskiptin og Faust voru sýndar ytra í tenglsum við hátíðina fyrir fullu húsi fjölmiðla – og leikhúsfólks og var vel fagnað.
Höfundar og leikarar verksins eru þau Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Víkingur Kristjánsson og Jóhannes Níels Sigurðsson. Leikmynd og búninga hannar Ilmur Stefánsdóttir og lýsingu annast Þórður Orri Pétursson. Pálmi Sigurhjartarson semur og flytur tónlist og Ólaf Örn Thoroddssen er hljóðmaður sýningarinnar.
Húsmóðirin er samstarfsverkefni Vesturports og Borgarleikhússins.
Hægt er að kaupa miða hér.