Fara í efni

Í minningu Vilhjálms Vilhjálmssonar slær í gegn á Akureyri!

Miðasalan rauk af stað með miklum látum á fyrstu auglýstu tónleikana og var orðið uppselt þegar 45 mínútur voru liðnar frá opnun sölunnar. 

Ákveðið var að setja á aðra tónleika samdægurs og seldist einnig upp á þá. Þar sem eftirspurnin er ennþá til staðar hefur verið ákveðið að efna til þriðju tónleikanna!

AUKA-AUKATÓNLEIKAR SUNNUDAGINN 3. OKTÓBER KL. 17:00

Vegna gríðarlegrar eftirspurnar höfum við ákveðið að bæta við þriðju tónleikunum sunnudaginn 3. október kl. 17:00 og verða það allra síðustu tónleikarnir. Miðasala hefst föstudaginn 17. september kl. 13:00 í Hofi, miðasölusími 450 1000. Einnig er hægt að kaupa miða á vefnum. Tryggið ykkur miða á þessa frábæru tónleika!

Til baka