Fara í efni

Jói Pé og Króli stækka samstarfið við Leikfélag Akureyrar

Jói Pé og Króli munu skrifa nýjan söngleik fyrir Leikfélag Akureyrar sem verður frumsýndur 2027. Eftir mögnuð viðbrögð við sýningunni Jóla Lóla, sem nú er sýndur við miklar vinsældir í Samkomuhúsinu, hafa þeir félagar ákveðið að setja markið enn hærra og skrifa söngleik í fullri lengd. Bergur Þór Ingólfsson leikhússtjóri mun skrifa verkið með þeim en hann skrifaði einnig Jóla Lólu í samstarfi við Kristinn Óla (Króla), Urði Bergsdóttur og Hjalta Rúnar Jónsson. Jóla Lóla var fyrsta tónlistarstjórnarverkefni Jóhanns Damian (Jóa Pé) í atvinnuleikhúsi og hefur fengið mjög góðar viðtökur á Spotify. Kristinn Óli (Króli) hefur leikið sín stærstu hlutverk hjá Leikfélagi Akureyrar en hann var Tóti Tannálfur í Benedikt búálfi, Baldur í Litlu Hryllingsbúðinni og leikur nú þrjú hlutverk í fjölskyldusýningunni um Jóla Lólu. “Það er ekki á hverjum degi sem ráðist er í gerð nýs söngleiks og mikið fagnaðarefni að jafn hæfileikaríkir listamenn og Jói Pé og Króli ætli að vinna þetta með okkur, söngleikir hafa líka farið mjög vel í Norðlendinga undanfarin ár og ég er ekki í vafa um að þetta samstarf verði jafn mikið ævintýri og fyrri verkefni og handviss um að eitthvað frábært komi út úr því” segir Bergur Þór.

Báðir hafa þeir tengingar norður þar sem rætur þeirra liggja og því liggur það í augum upp að frumsýna þennan söngleik fyrir norðan. Kristinn Óli er ættaður úr Svarfaðardal og Jói Pé frá Siglufirði.

Til baka