Jólaleg stemning á fjölskyldumorgni
13.12.2010
Sirrý safnkennari og Þór safnvörður sögðu gestum frá hrekkjóttum og þjófóttum jólasveinum sem mömmur, pabbar, ömmur og afar þekktu þegar þau voru ung og Hjalti Jónsson söngvari stýrði fjöldasöng með jólalegu ívafi við miklu lukku gesta sem sungu með af mikilli innlifun.
Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári.