Kammertónleikar
30.10.2015
Sunnudaginn 1. nóvember kl 16 verða kammertónleikar í Hömrum, Hofi á Akureyri. Leikin verða tvö verk Píanókvintett nr. 1, op. 30 eftir Louise Farrenc og Kvintett í A dúr D 667 eftir Franz Schubert. Flytjendur eru Greta Guðnadóttir fiðla, Guðrún Þórarinsdóttir víóla, Bryndís Björgvinsdóttir selló, Þórir Jóhannsson bassi og Ingunn Hildur Hauksdóttir píanó.
Það er Tónlistarfélag Akureyrar sem stendur fyrir þessum tónleikum í samstarfi við Félag íslenskra tónlistarmanna og Menningarfélag Akureyrar. Miðaverð er 2900 krónur, 20% afsláttur fyrir félagsmenn Tónlistarfélagsins og 50% afsláttur fyrir nema, aldraða og öryrkja.