Klassískar kvikmyndir í Hofi í vetur
Rauðu skórnir (The red shoes) 1948 – sýnd miðvikudaginn 21. september kl. 20
Leikstjóri: Michael Powell
Aðalhlutverk: Anton Walbrook, Marius Goring og Moira Shearer
Fyrsta myndin sem sýnd verður í Hofi er breska myndin Rauðu skórnir (e.The red shoes) frá árinu 1948. Myndin er lauslega byggð á
samnefndu ævintýri H.C. Andersen, en er einnig talin innblásin af sambandi balletdansaranna Sergei Diaghilev og Diana Gould. Diaghilev bað hana að ganga í
balletflokk sinn en hann lést áður en af því varð. Gould varð síðar eiginkona fiðlusnillingsins Yehudi Menuhin.
Rauðu skórnir hefur verið innblástur fyrir marga af þekktustu leikstjórum samtímans og til dæmis hefur Martin Scorsese ítrekað nefnt hana
sem sína uppáhaldsmynd og 2009 stóð hann að endurgerð hennar og hefur hún verið sýnd víða. Annar leikstjóri, Brian De Palma, hefur
einnig nefnt hana sem sína uppáhaldsmynd.
Rauðu skórnir þótti á sínum tíma einstaklega vel unnin kvikmynd. Hinn víðfrægi tökumaður Jack Cardiff myndaði og
notaðist við Technicolor tæknina sem þá var ný. Scorsese hefur bent á að þetta sé ein fegursta litmynd sem gerð hafi verið.
Myndin er einnig viðurkennd sem ein af sárafáum kvikmyndum sem tekur ballet alvarlega, en fjölmargir dansarar Konunglega balletsins í Bretlandi koma fram í
henni.
Miðasala fer fram hér og í miðasölu Hofs, s. 450 1000. Miðaverð: 1.200 kr.
Bíó Paradís við Hverfisgötuna í Reykjavík hefur heldur betur fest sig í sessi sem hjarta kvikmyndamenningar á Íslandi á því ári sem það hefur verið starfrækt. Þar eru sýndar nýjar og sígildar kvikmyndar sem rata sjaldan í hin almennu bíóhús. KvikYndi (Kvikmyndaklúbbur Akureyrar) hefur verið starfræktur í fjögur ár og tilgangur félagsins er að bjóða félögum sínum upp á sýningar á áhugaverðum kvikmyndum sem ekki standa til boða með öðrum hætti. Félagið stendur fyrir virku samstarfi við aðra kvikmyndaklúbba og er vettvangur umræðna um allt sem viðkemur kvikmyndum og kvikmyndamenningu og stendur einnig fyrir fyrirlestrum og námskeiðum eftir því sem tilefni gefst.