Konur eru konum bestar
Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari koma fram á þriðju tónleikum nýrrar klassískrar tónleikaraðar KÍTÓN sunnudaginn 27. maí í Hofi. Á efnisskrá tónleikanna eru lög íslenskra kventónskálda við ljóð íslenskra kvenljóðskálda. Víða verður komið við og m.a. flutt lög eftir eitt af dáðustu tónskáldum þjóðarinnar, Jórunni Viðar, og eitt af mest spennandi ungskáldum okkar, Sunnu Rán Wonder.
Á tónleikunum verður einnig flutt verkið Hvolf eftir Önnu Þorvaldsdóttur sem hún samdi fyrir tónlistarkonurnar árið 2010 en Anna er nú á mikilli sigurgöngu um hinn klassíska tónlistarheim. Auk þess verða flutt verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Þuríði Jónsdóttur, Þóru Marteinsdóttur og Elínu Gunnlaugsdóttur.
Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði og Tónlistarsjóði Hofs og Samkomuhússins.