Fara í efni

Kvikmyndakvöld - Rauðu skórnir

Rauðu skórnir (The red shoes) 1948

Fyrsta myndin sem sýnd verður í Hofi er breska myndin Rauðu skórnir (e.The red shoes) frá árinu 1948. Myndin er lauslega byggð á samnefndu ævintýri H.C. Andersen, en er einnig talin innblásin af sambandi balletdansaranna Sergei Diaghilev og Diana Gould. Diaghilev bað hana að ganga í balletflokk sinn en hann lést áður en af því varð. Gould varð síðar eiginkona fiðlusnillingsins Yehudi Menuhin.

Rauðu skórnir hefur verið innblástur fyrir marga af þekktustu leikstjórum samtímans og til dæmis hefur Martin Scorsese ítrekað nefnt hana sem sína uppáhaldsmynd og 2009 stóð hann að endurgerð hennar og hefur hún verið sýnd víða. Annar leikstjóri, Brian De Palma, hefur einnig nefnt hana sem sína uppáhaldsmynd.


Rauðu skórnir þótti á sínum tíma einstaklega vel unnin kvikmynd. Hinn víðfrægi tökumaður Jack Cardiff myndaði og notaðist við Technicolor tæknina sem þá var ný. Scorsese hefur bent á að þetta sé ein fegursta litmynd sem gerð hafi verið.

Myndin er einnig viðurkennd sem ein af sárafáum kvikmyndum sem tekur ballet alvarlega, en fjölmargir dansarar Konunglega balletsins í Bretlandi koma fram í henni.

21. september kl. 20.

Sýningin fer fram í Hamraborg, númeruð sæti.

Sýnd í samstarfi Menningarhússins Hofs, KvikYndis og Bíós Paradísar.

Til baka