Landsmót íslenskra kvennakóra
Landsmót íslenskra kvennakóra verður haldið á Akureyri dagana 9. – 11. maí og sér Kvennakór Akureyrar um skipulagningu mótsins. Yfir 700 konur úr 20 kórum víðsvegar af landinu og einum frá Noregi taka þátt í mótinu. Dagskráin er vegleg og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Sunnudaginn 11. maí kl. 15:00 verða stórtónleikar í Hofi og munu konurnar skipta sér í sex söngsmiðjur sem hver flytur þrjú lög. Allir þátttakendur landsmótsins mynda síðan einn stóran kór við undirleik hljómsveitar undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Þá frumflytur stórkórinn landsmótslagið ásamt því að syngja þrjú önnur lög. Hugi Guðmundsson tónskáld samdi landsmótslagið að þessu sinni við ljóð Jakobínu Sigurðardóttur, Vor í Garði.