Leikhússtjóri lýkur störfum
10.01.2018
Stjórn og framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar hafa tekið ákvörðun um að Jón Páll Eyjólfsson leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar starfi ekki út uppsagnarfrest sinn heldur ljúki störfum nú þegar. Byggist sú ákvörðun á því að ekki ríkir lengur traust um hans störf hjá félaginu.
Ákvörðun þessi er tekin að vel athuguðu máli og ríkir einhugur um hana. Framkvæmdastjóri vinnur nú að nauðsynlegu skipulagi vegna þeirra verkefna sem eru framundan á vegum LA.